Lær og Leg er gagnvirkur kennsluvefur fyrir byrjendur í dönsku. Vefurinn samanstendur af gagnvirkum verkefnum, hlustunaræfingum og síðast en ekki síst bók, sem annaðhvort er hægt að lesa á vefnum eða hlaða niður og prenta út.
Bókinni er skipt í 4. kafla. Á stikunni hér efst á síðunni er hægt að velja hvern kafla fyrir sig og lesa þá beint af síðunni. Ath. Til að fá síðurnar fram þarf að styðja á viðkomandi kaflahnapp. Undir hverjum kaflahnappi eru síðan ýmsir valmöguleikar. Valmöguleikarnir sem birtast þá eru:
Til útprentunar - Hér er hægt að hlaða niður öllum blaðsíðum kaflans og prenta þær út.
Heimavinna - Hér er hægt að skila heimavinnu viðkomandi kafla til kennara með rafrænum hætti.
Hlustunaræfingar - Hér er hægt að hlusta á hlustunaræfingar kaflans, eins oft og maður vill.
Öll gagnvirku verkefnin eru byggð þannig upp að hægt er að velja þrjú mismunandi þyngdarstig
úr sama efni. Þannig myndi kennari leggja verkefni a fyrir nemanda sem enn væri í erfiðleikum með
að ná tökum á efninu, b fyrir nemanda sem kominn er betur af stað og c fyrir nemanda sem hefur
náð enn betri tökum á námsefninu.
God fornøjelse!
Höfundar: Heimir Eyvindarson og Sigríður Sigurðardóttir
Teikningar: Kolbrún Vilhjálmsdóttir
Verkefnið var styrkt af:
Þróunarsjóði námsgagna
Nordplus
Dansk-íslensku samstarfsverkefni um stuðning við dönskukennslu á Íslandi